    <language>is</language>
Miðstöð skólaþróunar við HA
Viðurkenningar úr minningarsjóði Rósu Eggertsdóttur veittar í fyrsta sinn
Viðurkenningar úr minningarsjóði Rósu Eggertsdóttur voru veittar í fyrsta sinn á Námstefnu um Byrjendalæsi, sem haldin var í Háskólanum á Akureyri föstudaginn 11. september. Með viðurkenningunum var framúrskarandi starf kennara og leiðtoga í þágu læsismenntunar heiðrað og athygli vakin á góðum starfsháttum sem styrkja læsi nemenda.]]></description>
Málstofukall - Móðurmál og önnur mál: Mörk og flæði, möguleikar og áskoranir
Ráðstefnan er á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Að þessu sinni er ráðstefnan haldin í samstarfi við NNFF (Norrænt net um rannsóknir á kennslufræði fyrsta máls) og fer einkum fram á ensku og að hluta til á skandinavískum málum. Á laugardag verða haldnar málstofur fyrir þá sem vilja flytja erindi sín á íslensku.
Við bjóðum fræðafólk, doktorsnema, kennara af öllum skólastigum og annað fagfólk hjartanlega velkomið til að ræða nýjustu þekkingu í kennslu fyrsta og annars máls. Ráðstefnan er vettvangur fræðilegrar umræðu, miðlunar hugmynda og samstarfs þvert á tungumála-, menningar- og landfræðileg landamæri.]]></description>
Móðurmál og önnur mál: Mörk og flæði, möguleikar og áskoranir, ráðstefna 8.-10. apríl í HA
Vertu með á Vorráðstefnu Miðstöðvar skólaþróunar og Kennaradeildar HA í samstarfi við NNFF þar sem rætt verður um mörk, flæði og framtíð kennslu móðurmáls og annarra tungumála. Ráðstefnan er á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Að þessu sinni er ráðstefnan haldin í samstarfi við NNFF (Norrænt net um rannsóknir á kennslufræði fyrsta máls) og fer einkum fram á ensku og að hluta til á skandinavískum málum. Á laugardag verða haldnar málstofur fyrir þá sem vilja flytja erindi sín á íslensku.
Um 350 þátttakendur sóttu læsisviðburði í Háskólanum á Akureyri
Um 350 manns sóttu Námstefnu í Byrjendalæsi og ráðstefnuna Læsi til náms og yndis sem haldnar voru í Háskólanum á Akureyri dagana 11. og 12. september. Þar komu saman kennarar, fræðafólk og aðrir sem starfa að menntun barna til að ræða læsi, lestrarkennslu, lestrargleði og þróun skólastarfs.
Tveir þekktir erlendir sérfræðingar á sviði læsis og menntunar, Dominic Wyse og Pernille Ripp, voru meðal aðalfyrirlesara daganna. Þau nálguðust læsiskennslu frá ólíkum sjónarhornum og tengdu saman rannsóknir, kennslufræði og reynslu úr skólastofunni.]]></description>
📚 Til hamingju með alþjóðlegan dag læsis!
Þrátt fyrir PISA-tíðindi dagsins höldum við áfram að vinna að læsi af krafti og viljum nota tækifærið til að benda á nýtt efni frá MSHA sem getur nýst í læsisvinnu með nemendum.]]></description>
Haustdagur grunnskólanna 2026, fjölbreytt dagskrá og góð þátttaka
Haustdagur grunnskólanna var haldinn 14. ágúst í Háskólanum á Akureyri. Þar komu saman um 350 kennarar, stjórnendur og starfsfólk úr 15 grunnskólum á Norðurlandi. Haustdagurinn hefur fest sig í sessi sem mikilvægur hluti af upphafi skólaársins. Markmið dagsins er að skapa vettvang fyrir starfsfólk skólanna til að dýpka faglega þekkingu og styrkja samstarf innan skólasamfélagsins á svæðinu.]]></description>
Nýtt skólaár!
Nýtt skólaár er hafið og starfið hjá okkur á miðstöðinni rúllar af stað með krafti. Við leggjumst í ferðalög um landið, heimsækjum skóla, höldum námskeið og tökum þátt í fjölbreyttu þróunarstarfi með öflugu skólafólki.]]></description>
Samræðufélagar á Akureyri og í Reykjavík haust 2026
Spennandi námskeið - fyrir ÍSAT kennara á öllum skólastigum! Í haust verða námskeið bæði í Reykjavík og á Akureyri.]]></description>
Opið fyrir umsóknir hjá MSHA!
Miðstöð skólaþróunar býður upp á heildstæðan stuðning við starfsþróun á flestum sviðum skólastarfs. Vel rannsakað starfsþróunarlíkan. Fræðsla, ráðgjöf og stuðningur sem sniðinn er að þörfum skóla til lengri eða skemmri tíma.
Aukin gæði í kennslu, læsi á öllum skólastigum, mannkostamenntun,  leiðsagnarnám,  skólastjórnun, kennsla ÍSAT nemenda, efling teyma, námssamfélaga o.fl.]]></description>
MÁLSTOFUKALL - læsisráðstefnan Læsi til náms og yndis
Við óskum eftir erindum á málstofur frá kennurum á öllum skólastigum, fræðafólki og öðrum áhugasömum um efni ráðstefnunnar.]]></description>
Ekki nóg að safna gögnum!
Nýr þáttur af Kerfinu er kominn í loftið á rás 1. Gestir í þessum fyrsta þætti eru Gunnar Gíslason og Rúnar Sigþórsson. Umsjón er í höndum Guðrúnar Hálfdánardóttur. Áhugavert samtal fyrir alla sem hafa áhuga á læsi og menntun barna.]]></description>
Læsi til náms og yndis - læsisráðstefna 12. september 2026
Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA) og Miðstöð menntunar og skólaþróunar (MMS) standa fyrir læsisráðstefnunni Læsi til náms og yndis sem haldin verður við Háskólann á Akureyri laugardaginn 12. september 2026.]]></description>
Námstefna í Byrjendalæsi í HA -  11. september 2026
Föstudaginn 11. september verður haldin Námstefna í Byrjendalæsi í HA. Á námstefnunni koma saman kennarar sem kenna börnum á yngsta stigi grunnskóla með kennsluaðferðinni Byrjendalæsi og áhugafólk um læsi á yngsta stigi grunnskólans.
Í Byrjendalæsi er lögð áhersla á að börn kynnist áhugaverðum bókmenntum og fræðitextum. Barnabókmenntir og aðrir gæðatextar eru nýttir í lestrarkennslunni til að kenna tengsl stafs og hljóðs, efla lesskilning og kveikja áhuga barna á lestri og bókmenntum.]]></description>
Að verða læs fyrir lífið
Að undanförnu hefur verið hávær umræða um hvernig bregðast eigi við hnignandi lesskilningi meðal íslenskra grunnskólanema. Þessi umræða hefur beinst einhliða að lestrarkennslu á yngsta stigi grunnskóla en skilað að mestu leyti auðu varðandi kennslu á miðstigi og unglingastigi. Þetta er í alla staði óheppilegt og ólíklegt til árangurs. Í þessari grein eru færð rök fyrir nauðsyn þess að koma umræðunni upp úr þessum hjólförum og beina sjónum að því sem hægt er – og þarf – að gera á mið- og unglingastigi.]]></description>
Dagur leikskólans - ný vefsíða um barnaheimspeki
Á vefsíðunni er barnaheimspeki kynnt sem leið til að efla gagnrýna hugsun og samræðuhæfni barna í leikskólastarfi. Áhersla er lögð á að skapa rými fyrir opnar spurningar, ígrundun og samræður þar sem börn læra að setja orð á hugsanir sínar og hlusta á sjónarmið annarra. Með þessu er stutt við virka þátttöku barna, málþroska og félagslega færni í leikskólastarfi.]]></description>
Fræðimenn gagnrýna fréttaflutning Moggans um Byrjendalæsi – „Sannleikurinn vill einnig oft verða illa úti“
Fræðimenn við Háskólann á Akureyri og læsisfræðingur gera athugasemdir við fréttaflutning Morgunblaðsins um Byrjendalæsi í grein sem birtist hjá Vísi í dag. Greinarhöfundar eru: Gunnar Gíslason, forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Guðmundur Engilbertsson, lektor og deildarforseti Kennaradeildar Háskólans á Akureyri, Jenný Gunnbjörnsdóttir, sérfræðingur hjá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir læsisfræðingur, Rannveig Oddsdóttir, dósent við Kennaradeild Háskólans á Akureyri, og Rúnar Sigþórsson, fyrrverandi prófessor við Kennaradeild Háskólans á Akureyri.]]></description>
Ekkert styður fullyrðingar um lélegan árangur af Byrjendalæsi
Heimildin birti síðastliðinn miðvikudag grein sem byggir á viðtali við Zuilmu Gabríelu Sigurðardóttur prófessor í atferlisgreiningu við HÍ, sem fer stórum orðum um kennsluaðferðina Byrjendalæsi. Hún fullyrðir að árangur skóla hafi dalað eftir að aðferðin var tekin upp, aðferðin byggi á úreltri hugmyndafræði sem hafi valdið skaða í öðrum löndum og Háskólinn á Akureyri eigi fjárhagslegra hagsmuna að gæta af aðferðinni. Engin þessara fullyrðinga stenst hins vegar skoðun eins og hér verður rakið nánar.]]></description>
„Því miður þá verðum við að orða þetta þannig að ráðherra fer ekki með rétt mál“
Forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar segir Ingu Sæland ekki fara með rétt mál þegar hún gagnrýnir verkefnið um byrjendalæsi. Læsisverkefni fyrir fyrstu bekki grunnskóla sé ekki ástæðan fyrir lélegum lesskilningi nemenda í tíunda bekk.]]></description>
Rannveig Oddsdóttir gestur í morgunútvarpi Rásar 2
Rannveig Oddsdóttir dósent við Háskólann á Akureyri var gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. Rannveig  hefur rannsakað þróun lestrarfærni barna í 1. og 2. bekk í byrjendalæsisskólum. ]]></description>
Segir Ingu Sæland skorta læsi á málefni ráðuneytisins
Dósent við kennaradeild Háskólans á Akureyri segir orðræðu Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, bera þess merki að hana skorti læsi á málefni ráðuneytisins. Hún segist ekki átta sig á orðum ráðherra um finnsku leiðina í skólum.]]></description>