Móðurmál og önnur mál - Doktorsnemar

Móðurmál og önnur mál: Mörk og flæði, möguleikar og áskoranir

 

Ráðstefnan er á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Að þessu sinni er ráðstefnan haldin í samstarfi við NNFF (Norrænt net um rannsóknir á kennslufræði fyrsta máls) og fer einkum fram á ensku og að hluta til á skandinavískum málum. Á laugardag verða haldnar málstofur fyrir þá sem vilja flytja erindi sín á íslensku.

Ráðstefnugjöld fyrir doktorsnema

Snemmskráning 15.000 kr. 
Almenn skráning 25.000 kr. 
Einungis laugardagurinn 15.000 kr. 


Forráðstefna doktorsnema

Í tengslum við ráðstefnuna verður haldin forráðstefna fyrir doktorsnema þann 8. apríl 2027 kl. 8.30-14.00. Þar gefst þátttakendum tækifæri til að kynna verk í vinnslu, ræða rannsóknir sínar og fá endurgjöf frá öðrum doktorsnemum og reyndum fræðimönnum.

Doktorsnemar sem vilja taka þátt þurfa fyrst að senda inn stutta greinargerð um rannsóknarverkefni sitt (hámark 200 orð) fyrir 30. október 2026. Tilkynnt verður um samþykki 8. janúar 2027. Nánari leiðbeiningar má finna á vef ráðstefnunnar: https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/modurmal-og-onnur-mal

Á forráðstefnunni verður þátttakendum skipt í smærri hópa þar sem þeir kynna verkefni sín, ræða rannsóknir hvers annars og veita endurgjöf. Þátttakendur fá einnig endurgjöf frá reyndum fræðimönnum.

Upplýsingar um staðsetningu og endanlega dagskrá verða birtar síðar.

Ráðstefnan hefst formlega að forráðstefnunni lokinni klukkan 14:30 fimmtudaginn 8. apríl og stendur til 15:30 laugardagsins 10. apríl 2027.


Forráðstefna fyrir doktorsnema - fimmtudaginn 8. apríl frá klukkan 8:30-14:00
Þeir sem taka þátt í forráðstefnunni þurfa að skila inn vinnuheiti á kynningunni sinni.