Krakkaspjall í Háskólanum á Akureyri

Krakkaspjall – starfstengt námskeið fyrir kennara

Krakkaspjall er samræðu- og samskiptaverkefni ætlað strákum og stelpum á yngsta- og miðstigi grunnskóla. Verkefnið var þróað á Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri í samstarfi við nemendahópa og kennara. Verkefnið samanstendur af 10 samræðu- og samskiptafundum og er hver fundur 40 mínútna langur. Á fundunum hittist krakkahópur og samræðustjóri og taka þátt í fjölbreyttum samræðu- og samskiptaverkefnum.

Um námskeiðið

  • Námskeiðið hefst með námskeiðsdegi kl. 10–15.30
  • Þátttakendur vinna með verkfæri Krakkaspjalls (10 umræðufundir) hver í sínum skóla
  • Námskeiðið endar á ½ dags námskeiði (tímasetning sett í samráði við þátttakendur)
  • Kostnaður er kr. 8000 á þátttakanda og er námskeiðið að hluta styrkt af Endurmenntunarsjóði grunnskóla

Um Krakkaspjall

Meginmarkmið Krakkaspjalls er að þátttakendur þjálfast í og læri að taka þátt í samræðum og byggi undir hæfni sem nýtist þeim í daglegum samskiptum.

Einn samræðufundur er helgaður hópeflisleikjum og níu samræðufundir fela í sér:                       

  • Viðfangsefni/lykilspurningu
  • Spjall um viðfangsefni
  • Leik og/eða verkefnavinnu
  • Samantekt

Krakkarnir setja sér markmið á fundunum og vinna að því markmiði á milli funda. Sett eru samræðuviðmið með krökkunum. Viðmiðin hafa það hlutverk að efla gæði samræðnanna og samskiptanna.

Verkefnið fellur vel að lykilhæfniviðmiðum Aðalnámskrár grunnskóla.

Krakkaspjall í Háskólanum á Akureyri
Krakkaspjallsnámskeið verður haldið í Háskólanum á Akureyri 16. janúar 2018 kl. 10-15.30.
Skráning á Krakkaspjallsnámskeið

Allar nánari upplýsingar um Krakkaspjall gefur 
Sigríður Ingadóttir (sigriduri@unak.is) sérfræðingur við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri