Flżtilyklar
Vorrįšstefna 2015
Hugsmíðar og hæfnimiðað nám
Vorráðstefna um menntavísindi á vegum miðstöðvar skólaþróunar HA var haldin í Háskólanum á Akureyri laugardaginn 18. apríl 2015. Ráðstefnan var tileinkuð hæfnimiðuðu skólastarfi og markmiðið var að varpa ljósi á hvaða hugarfar og starfshættir í skólastarfi stuðla að hæfni nemenda.
Á hverjum tíma stuðlar almenn menntun að aukinni hæfni einstaklingsins til að takast á við áskoranir daglegs lífs. Hún miðar að því að efla skilning einstaklingsins á eiginleikum sínum og hæfileikum og þar með hæfni til að leysa hlutverk sín í flóknu samfélagi. Hún er hvort tveggja í senn einstaklingsmiðuð og samfélagsleg[1].
Efni ráðstefnunnar var að venju sniðið að leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar:
- Lyn Dawes, menntunarfræðingur og fyrrverandi dósent í menntavísindum við Bedford, Northampton og Cambridge háskóla á Bretlandi
- Henry Alexander Henrysson, verkefnisstjóri við heimspekistofnun Háskóla Íslands
- Ísak Rúnarsson, nemandi við Háskóla Íslands og formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands
![]() |
![]() |
![]() |
Lyn Dawes | Henry Alexander Henrysson | Ísak Rúnarsson |
Á ráðstefnunni voru auk aðalfyrirlesara um 30 málstofur þar sem ýmis mál voru reifuð er lúta að þróun hæfnimiðaðs skólastarfs.
Ráðstefnurit
Nánari upplýsingar veita Helga Rún Traustadóttir, 460 8585, netfang:helgarun@unak.isog Sólveig Zophoníasdóttir, 460 8564, netfang:sz@unak.is.
[1] Mennta- og menningarmálaráðuneytið. (2011). Aðalnámskrá grunnskóla – almennur hluti. Reykjavík: Höfundur.