Málþing um læsi 2015


Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri efndi til málþings um læsi laugardaginn 10. október 2015 á Akureyri. Markmið málþingsins var að skapa vettvang fyrir málefnalega umræðu um fjölbreyttar og árangursríkar aðferðir í læsiskennslu og matsaðferðir sem meta þá hæfni sem stefnt er að og aðalnámskrá kveður á um.

Á málþinginu var lögð áhersla á að ræða alla þætti læsis sem mikilvægir eru taldir í námskrá, s.s. að nemendur sýni áhuga og virkni í læsi, hafi gott vald á tengslum stafs og hljóða, auk þess að ná góðum hraða og öryggi í lestri og ritun. Einnig var lögð áhersla á að ræða aukna færni í lesskilningi, ályktunarhæfni og gagnrýninni hugsun og að tjá sig á skapandi hátt út frá lestri, hlustun, tali og ritun.

Málþingið var opið öllum og var þátttakendum að kostnaðarlausu. Verkefnasjóður HA styrkti málþingið. Hér má finna stutta umfjöllun um málþingið og myndir frá því sem Trausti Þorsteinsson tók. 

Hér fyrir neðan er dagskrá málþingsins, upptökur af erindum og glærur með einstaka erindi.

Dagskrá málþingsins

Málþing um læsi
Stefna – þróun – mat

Laugardaginn 10. október 2015 kl. 13–17, í hátíðarsal Háskólans á Akureyri, Sólborg
Málþingsstjóri: Brynhildur Pétursdóttir alþingismaður

Mennta- og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson

Ávarp rektors HA,  Eyjólfur Guðmundsson

Fram og aftur Hvítbókina. Hvernig náum við markmiðum hennar?
Gylfi Jón Gylfason sviðstjóri matssviðs Menntamálastofnunar
Upptaka af erindi Gylfa Jóns

Hvað segir tölfræðin okkur og hvað segir hún okkur ekki?
Amalía Björnsdóttir dósent við Háskóla Íslands
Upptaka af erindi Amalíu 

Stefna og starf byggt á rannsóknum
Jón Torfi Jónasson prófessor við Háskóla Íslands
Glærur
Upptaka af erindi Jóns Torfa

Bókaormar og písaeðlur – um lestraruppeldi í grunnskólum
Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur og dósent við Háskólann á Akureyri
Upptaka af erindi Brynhildar        

Að halda göngunni áfram: Nútíð og framtíð rannsókna og þróunarstarfs um læsi við Háskólann á Akureyri
Rúnar Sigþórsson prófessor við Háskólann á Akureyri
Glærur
Upptaka af erindi Rúnars

Pallborð og umræður. Laufey Petrea Magnúsdóttir uppeldis- og menntunarfræðingur stýrir umræðum
Þátttakendur í pallborði: Kristín Jóhannesdóttir Skólastjórafélagi Íslands, Kristín Helga Gunnarsdóttir Rithöfundasambandi Íslands, Arnór Guðmundsson Menntamálastofnun, Rúnar Sigþórsson prófessor og Gunnar Gíslason bæjarfulltrúi á Akureyri
Upptaka af pallborðsumræðum

Samantekt og lokaorð, Birna M. Svanbjörnsdóttir forstöðumaður miðstöðvar skólaþróunar HA

Málþingið var öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu

Upptaka af málþinginu í heild 
http://upptaka.unak.is/Panopto/Pages/Viewer.aspx?id=6ffc8d47-68a0-4081-8cf3-8f35f6bc99db