RHA og miðstöð skólaþróunar við HA hljóta styrk vegna rannsóknar á samfélagslegu hlutverki háskóla

 

 

 

 


Menntamálaráðherra samþykkti að Rannsóknastofa um háskóla auglýsti í janúar síðastliðnum styrk til rannsóknar á eftirfarandi viðfangsefnum:

  • Hvernig skilja íslenskir háskólakennarar og sérfræðingar starfsskyldur sínar og fagmennsku?

     

  • Hvernig skilja íslenskir háskólakennarar samfélag sitt og samfélagslegar skyldur?

     

Rannsóknina má rekja til þess að í kjölfarið á hruni íslenska bankakerfisins var kallað eftir ítarlegri endurskoðun og mati á ýmsum gildum sem samfélagið hefur verið reist á. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis var m.a. vikið að háskólasamfélaginu og gagnrýni á það kom fram. Samþykkti menntamálaráðherra árið 2010 tillögu stjórnar Rannsóknastofu um háskóla um að fé yrði varið til að vinna að rannsóknum á háskólunum í þessu samhengi.

RHA og miðstöð skólaþróunar HA hlutu þennan styrk og í raun má líta svo á að með honum sé verið að hrinda af stað stærri rannsókn á þeim viðfangsefnum sem greint var frá að ofan. 

Lesa meira