Hugsmíðar og hæfnimiðað nám
Vorráðstefna um menntavísindi á vegum miðstöðvar skólaþróunar HA var haldin í Háskólanum á Akureyri laugardaginn 18. apríl 2015. Ráðstefnan var tileinkuð hæfnimiðuðu skólastarfi og markmiðið var að varpa ljósi á hvaða hugarfar og starfshættir í skólastarfi stuðla að hæfni nemenda. 
Á hverjum tíma stuðlar almenn menntun að aukinni hæfni einstaklingsins til að takast á við áskoranir daglegs lífs. Hún miðar að því að efla skilning einstaklingsins á eiginleikum sínum og hæfileikum og þar með hæfni til að leysa hlutverk sín í flóknu samfélagi. Hún er hvort tveggja í senn einstaklingsmiðuð og samfélagsleg[1]. 
Efni ráðstefnunnar var að venju sniðið að leik-, grunn- og framhaldsskólum. 
Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar:
- Lyn Dawes, menntunarfræðingur og fyrrverandi dósent í menntavísindum við Bedford, Northampton og Cambridge háskóla á Bretlandi
 
- Henry Alexander Henrysson, verkefnisstjóri við heimspekistofnun Háskóla Íslands
 
- Ísak Rúnarsson, nemandi við Háskóla Íslands og formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands
 
  | 
  | 
  | 
| Lyn Dawes | 
Henry Alexander Henrysson | 
Ísak Rúnarsson | 
 
 
Á ráðstefnunni voru auk aðalfyrirlesara um 30 málstofur þar sem ýmis mál voru reifuð er lúta að þróun hæfnimiðaðs skólastarfs.
Veggspjald ráðstefnunnar