Smiðjur í Byrjendalæsi - Námsaðlögun (14. mars) og samþætting námsgreina og samvinnunám (16. mars)

Byrjendalæsi er samvirk nálgun í læsiskennslu barna 1. og 2. bekk. Samvirk aðferð fellur mitt á milli eindaraðferða og heildaraðferða. Eindaraðferðir byggja á því að umskráningarferlið sé línulegt sem leiðir til þess að tæknilegir þættir læsis eru þjálfaðir í aðskildum einingum og í ákveðinni röð. Gengið er út frá því að ferlið byrji á ritmálinu með því að umskrá rittákn í málhljóð. Nemendur læra fyrst bókstafina og hljóð þeirra og tengja þá síðan í orð og orð í setningar og þær síðan í merkingabærar heildir. Hljóðaaðferðin er ein þeirra aðferða sem tilheyra eindaraðferðinni. Heildaraðferðin er orðaaðferð sem gengur í eina átt þ.e. frá hinu stóra til hins smáa.

Byrjendalæsi sækir innblástur til kenninga um hugsmíðahyggju og nám án aðgreiningar og gert er ráð fyrir að börn læri best í samfélagi jafningja, með samvinnu, stigskiptum stuðningi og hvers konar námsaðlögun sem auðveldar kennurum að koma til móts við ólíkar þarfir þeirra og áhugasvið. Við samsetningu Byrjendalæsis var meðal annars stuðst við kenningar Gudschinsky, Frost, Rumelhart, Solity og Leimar. Ennfremur var sótt til NRP2000 rannsóknarinnar þar sem kemur fram mikilvægi þess að kennsluaðferðir í læsi feli í sér nálgun sem nái til allra þátta móðurmálsins. Þannig er vinna með tal, hlustun, lestur og ritun felld í eina heild undir hatti læsis. Ennfremur eru sértækir þættir tungumálsins, svo sem hljóðvitund, réttritun, skrift, orðaforði og lesskilningur tengd inn í ferlið.

Nám í Byrjendalæsi tekur tvö ár og samanstendur af tveggja daga grunnnámskeiði að hausti á fyrsta ári og dagsnámskeiði á öðru ári. Til viðbótar við haustnámskeiðin hittast kennarar fimm sinnum á hvoru ári í smiðjum (alls 10 smiðjur). Í smiðjunum koma kennarar saman, kynna sér nýjar aðferðir, ræða saman og miðla efni sín á milli. Smiðjurnar eru haldnar á vegum MSHA á vefnum en einnig geta leiðtogar í skólum á ákveðnu svæði tekið sig saman og haldið smiðjur. Áður en kennarar koma á smiðjur horfa þeir á fyrirlestra á Canvas með innleggi frá ráðgjöfum MSHA (1–1,5 klst). Við mælum með því að kennarar horfi saman á smiðjurnar ef fleiri en einn kennari úr hverjum skóla er í náminu. Einnig eru fyrirlestrarnir góð upprifjun fyrir eldri Byrjendalæsiskennara sem hafa lokið námi. Nýlega voru allir fyrirlestrar styttir og endurgerðir og því um að gera að nýta þá t.d. á Byrjendalæsisfundum í skólanum.

Á smiðjunum er unnið með ákveðin viðfangsefni/þemu með umræðum og verkefnavinnu.

Hver smiðja stendur yfir frá klukkan 14:00–16:00.  Smiðjurnar eru fyrir kennara sem eru í Byrjendalæsisnámi og Byrjendalæsiskennara sem vilja nýta smiðjurnar sem endurmenntun.

Hlekkur á fundinn.