Siðferðisglímur fyrir ungt fólk
Námsefnið Siðferðisglímur byggir á klípusögum. Klípusögurnar endurspegla krefjandi aðstæður sem ungt fólk getur staðið frammi fyrir í daglegu lífi. Markmið námsefnisins er að skapa vettvang fyrir samræður, ígrundun og gagnrýna hugsun þar sem nemendur fá tækifæri til að skoða siðferðileg álitamál frá ólíkum sjónarhornum, rökstyðja skoðanir sínar og hlusta af virðingu á aðra. Lögð er áhersla á þemu sem tengjast vináttu, ábyrgð, virðingu, samskiptum og samfélagi.
Efnið byggir á samræðuaðferðinni ábyrgri samræðu. Ábyrg samræða er námsaðferð þar sem þekking verður til í gegnum samtal. Með ábyrgri samræðu verður samtalið í kennslustofunni eitt helsta verkfæri námsins. Til að styðja enn frekar við þessa vinnu er stuðst við flokkunarkerfi Bloom. Flokkunarkerfi Bloom styður nemendur í að þróa hugsun sína stig af stigi. Með markvissum spurningum og verkefnum fara nemendur frá því að muna og skilja yfir í að beita þekkingu, greina upplýsingar, leggja mat á hugmyndir og skapa nýjar lausnir.
Smelltu hér til að opna námsefnið rafrænt
Smelltu hér til að opna námsefnið á pdf formi