Dagur leikskólans - ný vefsíða um barnaheimspeki

Ný síða um barnaheimspeki og samræður í leikskólastarfi

Á Degi leikskólans opnar formlega ný vefsíða um barnaheimspeki unnin í samstarfi leikskólans Lundarsels Pálmholts og Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. Vefsíðan er öllum opin og byggir á þróunarstarfi sem unnið hefur verið í leikskólanum um árabil.

Á síðunni Að undrast er að finna kennsluleiðbeiningar sem eru ætlaðar fyrir kennara og annað starfsfólk sem vinnur með börnum. Leiðbeiningarnar bjóða upp á fjölbreyttar umræðukveikjur þar sem börn og fullorðnir geta sameiginlega rannsakað heimspekileg viðfangsefni á leikrænan og skapandi hátt. Efnið er hannað til að styðja við opnar samræður þar sem spurningar og hugleiðingar barnanna fá rými til að þróast náttúrulega og kennarinn tekur þátt sem jafningi og leiðbeinandi. Með efninu fylgja tillögur að áframhaldandi vinnu, svo sem skapandi verkefnum, rannsóknum og dýpri samræðum. þar sem barnaheimspeki og samræður hafa verið nýttar markvisst í daglegu starfi með börnum.

Það er viðeigandi að opna síðuna á Degi leikskólans, 6. febrúar. Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur árlega og á rætur að rekja til ársins 1950, þegar frumkvöðlar í leikskólakennslu stofnuðu sín fyrstu samtök og lögðu grunn að faglegu leikskólastarfi á Íslandi. 

Vefsíðan er aðgengileg hér en einnig er hægt að skanna qr kóðann sem fylgir fréttinni:
https://sites.google.com/view/barnaheimspeki/heim