Fallið óháð Byrjendalæsi

 

20. ágúst 2015

Árangur barna í 1. og 2. bekk grunnskóla, sem læra eftir aðferðum Byrjendalæsis, hefur verið umtalsverður. Nemendur gangast undir próf þrisvar á ári og samanburður undanfarinna ára sýnir að börn ná betri árangri í lestri og að börnum sem hafa átt erfitt með að læra að lesa hefur fækkað verulega. Þetta er í samræmi við erlendar rannsóknir sem Byrjendalæsið er byggt á. Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri gagnrýnir þá einfölduðu framsetningu á niðurstöðum prófa sem birtist í minnisblaði Menntamálastofnunar.

Í fjölmiðlum hefur menntamálaráðherra, Illugi Gunnarsson, haldið fram nauðsyn þess að meta árangur með reglulegum hætti þegar um nýjar aðferðir er að ræða. Það hefur miðstöð skólaþróunar gert og fyrir liggja ítarlegar niðurstöður milli ára, skóla og kynja. Með hliðsjón af niðurstöðum þessa reglulega mats hafa aðferðir í Byrjendalæsi verið í sífelldri þróun sem gerir erfitt um vik að fullyrða um áhrif aðferðarinnar til lengri tíma.

Í samanburði Menntamálastofnunar er litið á árangur skóla í samræmdum prófum í 4. bekk. Hafa þarf í huga að Byrjendalæsi nær eingöngu til barna í 1. og 2. bekk og að möguleg áhrif aðferðarinnar koma því væntanlega ekki fram í árangri samræmdra prófa fyrr en 3-4 árum síðar. Það fall sem kemur fram í árangri í línuritinu er því tæplega hægt að rekja til aðferða Byrjendalæsis. Í því sambandi má benda á árangur í stærðfræði sem einnig kemur fram í línuriti Menntamálastofnunar. Árangurinn breytist með sama hætti og árangurinn í íslensku.

Miðstöð skólaþróunar hefur verið starfrækt við Háskólann á Akureyri síðan 1999. Fjöldi þeirra skóla sem hefur leitað til stofnunarinnar hefur aukist ár frá ári. Miðstöðin hefur lagt metnað sinn í fagleg vinnubrögð og náið samstarf við kennara og stjórnendur á vettvangi. Miðstöðin fagnar umræðu um læsi og hefur reglulega sóst eftir gögnum og samvinnu við aðrar stofnanir um rannsóknir á þessu sviði.

Þjóðarsáttmála um læsi verður ýtt úr vör á mánudaginn.Til þess að slíkt átak geti staðið undir nafni er mikilvægt að öll sú sérfræðiþekking sem til er í landinu sé notuð á jákvæðan og uppbyggjandi hátt til hagsbóta fyrir komandi kynslóðir. Miðstöð skólaþróunar telur vinnubrögð Menntamálastofnunar ekki í þessum anda.

Niðurstöður úr læsi

Myndin sýnir hlutfallslegan árangur nemenda í Byrjendalæsi í 1. bekk frá 2007-2015 samkvæmt skimunarprófum miðstöðvar skólaþróunar. Bláa súlan sýnir hlutfall nemenda sem ná 0-30% árangri, appelsínugula súlan sýnir 30-60% árangur og sú gráa 60-100% árangur.

Frekari upplýsingar veitir: Birna M. Svanbjörnsdóttir, forstöðumaður miðstöðvar skólaþróunar Háskólans á Akureyri.
Netfang: birnas@unak.is 
Sími: 8699995