Fræðslufundur: Hvernig lífsleikni?

4. desember 2008 kl. 16:30
Hvernig lífsleikni? Staða lífsleikni í fjórum íslenskum framhaldsskólum
Sverrir Haraldsson, M.Ed.
Meistaraprófsverkefni Sverris ber titilinn Hvernig lífsleikni? Staða lífsleikni í fjórum íslenskum
framhaldsskólum
. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna stöðu kennslu í lífsleikni í fjórum íslenskum framhaldsskólum. Rannsóknin var eigindleg og sýndi að svo virðist sem megináhersla í kennslu í lífsleikni í þessum skólunum sé á félagsþroska- og tilfinninganám auk menntunar í þegnskap og skapgerðarmótun. Greina mátti aukinn þátt þegnskaparmenntunar sé mið tekið af tillögum að endurskoðun aðalnámskrár.
Leiðsögukennari var Guðmundur Heiðar Frímannsson  Háskólanum á Akureyri, ráðunautur var Rúnar Sigþórsson Háskólanum á Akureyri og prófdómari var Erla Kristjánsdóttir Háskóla Íslands.