Haustdagur grunnskólanna var haldinn 14. ágúst í Háskólanum á Akureyri. Þar komu saman um 350 kennarar, stjórnendur og starfsfólk úr 15 grunnskólum á Norðurlandi. Haustdagurinn hefur fest sig í sessi sem mikilvægur hluti af upphafi skólaársins. Markmið dagsins er að skapa vettvang fyrir starfsfólk skólanna til að dýpka faglega þekkingu og styrkja samstarf innan skólasamfélagsins á svæðinu.
Boðið var upp á áhugaverða fyrirlestra og námskeið um fjölbreytt viðfangsefni sem tengjast námi og kennslu, farsæld og velferð nemenda og starfsfólks í grunnskólum. Aðalerindi dagsins fluttu tæknifrömuðirnir Bergmann Guðmundsson og Hans Rúnar Snorrason en þeir fjölluðu um hvernig hægt er að nýta gervigreind í skólastarfi til að spara tíma, auka gæði og einstaklingsmiða nám og kennslu.
Auk aðalerindis var boðið upp á fjölbreyttar vinnustofur, þar sem meðal annars var fjallað um gagnvirkan lestur, hagnýtar aðferðir í kennslu einhverfra barna, náttúrufræðikennslu, eTwinning evrópusamstarf, ÍSAT námsmat, leiðsagnarnám, bekkjarstjórnun, viðbrögð í stigmagnandi aðstæðum, hugsandi skólastofu, stafræna hönnun og smíði, gervigreind og tækni.
Miðstöð skólaþróunar og undirbúningsteymi Haustdagsins þakka þátttakendum fyrir frábæran dag, góða og gefandi samveru.