Íslensku menntaverðlaunin 2025 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 4. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum; fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.
Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Að auki er veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Verðlaunin ná til leik-, grunn- og framhaldsskólastigs, sem og til listnáms og félags- og tómstundastarfs.
Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarfi fær Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar fyrir afar metnaðarfullt og árangursríkt starf. Árangur hljómsveitarinnar þykir einstakur. Hún hefur komið fram í sýningum í Borgarleikhúsinu, með Íslenska dansflokknum, á Myrkum músíkdögum, í sjónvarpi, á fjölmörgum hljómleikum og við ýmsa viðburði, auk þess að heimsækja dvalarheimili aldraðra, svo fátt eitt sé nefnt. Síðustu ár hefur hátt hlutfall nemenda við skólahljómsveitina haldið áfram tónlistarnámi.
Verðlaun fyrir framúrskarandi kennslu fær í ár Örvar Rafn Hlíðdal, íþróttakennari við Flóaskóla, fyrir framúrskarandi árangur í starfi. Örvar Rafn þykir einstaklega laginn við að ná til allra nemenda, leggur áherslu á hollustu og heilbrigða lífshætti og sýnir nemendum í verki hversu mikils virði það er að að leggja sig fram fyrir hópinn og láta aldrei sitt eftir liggja við að aðstoða og hjálpa öðrum að ná markmiðum sínum. Flóaskóli hefur undir leiðsögn Örvars tekið þátt í Skólahreysti undanfarin ár. Þó skólinn sé fámennur, hafa keppnislið skólans náð inn í úrslit ár eftir ár og tvisvar unnið keppnina.
Verðlaun í flokki þróunarverkefna fær verkefnið Lítil skref á leið til læsis, samstarfsverkefni leikskólans Grænuvalla og Borgarhólsskóla á Húsavík um málörvun og læsi. Verkefnið beinist annars vegar að auknu samráði kennara á báðum stigum um að efla málþroska og læsi og hins vegar að öflugri foreldrafræðslu. Áhugaverður þáttur í verkefninu er aðkoma sjúkraþjálfara, sem hefur kannað fínhreyfingar barnanna og síðan hafa þau börn sem á því þurfa að halda fengið markvissa þjálfun.
Verðlaun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar fær Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum sem hefur á undanförnum árum markað sér sterka stöðu í kennslu málm- og vélstjórnargreina. Sérstaða námsins felst í því hvernig tekist hefur að umbreyta hefðbundnu námi í verkefnamiðað og atvinnulífstengt ferli þar sem nemendur vinna raunhæf verkefni sem endurspegla aðstæður í atvinnulífinu.
Hvatningarverðlaunin koma í hlut Háaleitisskóla í Reykjanesbæ. Í skólanum eru sjö af hverjum tíu nemendum eru af erlendum uppruna og í skólanum eru töluð um 30 tungumál. Í skólanum hefur tekist að skapa einstaklega jákvæða skólamenningu, m.a. með því að líta á fjölmenninguna sem styrk skólans. Mikil rækt hefur verið lögð á samstarf við foreldra og að styðja þá við að setja sig inn í og skilja íslenskt skólakerfi.
Að Íslensku menntaverðlaununum standa embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og Samtök iðnaðarins.
Mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið og Samtök iðnaðarins fjármagna verkefnið.
Athygli er vakin á því að þegar er hægt að senda inn tillögur að tilnefningum fyrir næsta ár, sjá á www.skólaþróun.is þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um verðlaunahafa og tilnefningar.