Málstofukall - Móðurmál og önnur mál: Mörk og flæði, möguleikar og áskoranir

Ráðstefnan Móðurmál og önnur mál: Mörk og flæði, möguleikar og áskoranir verður haldin í Háskólanum á Akureyri 8.-10. apríl 2027.

Yfirskrift ráðstefnunnar er Mörk og flæði, möguleikar og áskoranir.

Ráðstefnan er á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Að þessu sinni er ráðstefnan haldin í samstarfi við NNFF (Norrænt net um rannsóknir á kennslufræði fyrsta máls) og fer einkum fram á ensku og að hluta til á skandinavískum málum. Á laugardag verða haldnar málstofur fyrir þá sem vilja flytja erindi sín á íslensku.

Við bjóðum fræðafólk, doktorsnema, kennara af öllum skólastigum og annað fagfólk hjartanlega velkomið til að ræða nýjustu þekkingu í kennslu fyrsta og annars máls. Ráðstefnan er vettvangur fræðilegrar umræðu, miðlunar hugmynda og samstarfs þvert á tungumála-, menningar- og landfræðileg landamæri.


Málstofukall

Nú er opið fyrir innsendingu ágripa á ráðstefnuna. Við óskum eftir erindum á málstofur frá kennurum á öllum skólastigum, fræðafólki og öðrum áhugasömum um efni ráðstefnunnar.

Einkum er leitað eftir:

  • Kynningu á árangursríkum leiðum, aðferðum og verkfærum
  • Kynningu á vel heppnuðum þróunarverkefnum
  • Kynningu á nýlegum íslenskum og erlendum rannsóknum
  • Efni sem bíður upp á virka þátttöku gesta

Málstofa

Ágrip (um það bil 300 orð, fyrir utan heimildir) - Lengd erindis: 20 mínútur + 10 mínútur til umræðu.

Senda inn. 


Samsett málstofa

Þegar málstofa er lögð fram skal skila yfirlitságripi um málstofuna (um það bil 200-300 orð, fyrir utan heimildir). Ágripi fyrir hvert einstakt erindi (200-300 orð, án heimilda). Samsett málstofa stendur yfir í 90 mínútur. Fjöldi erinda í samsettri málstofu er 3 – 5.

Senda inn. 


Málstofa doktorsnema

Doktorsnemar sem vilja taka þátt í forráðstefnu doktorsnema eru beðnir um að senda inn stutta greinargerð um rannsóknarverkefni sitt, að hámarki 200 orð.

Senda inn.