Yfirskrift ráðstefnunnar er Mörk og flæði, möguleikar og áskoranir.
Við lifum á miklum umbreytingatímum þar sem hreyfanleiki fólks milli svæða og landa eykst stöðugt. Mörk milli þjóða, menningarheima og tungumála færast sífellt til og verða á ýmsan hátt óljósari. Þessi þróun hefur bæði í för með sér áskoranir og tækifæri fyrir kennslufræði móðurmáls, einkum í tengslum við kennslu annars máls.
Ráðstefnan hvetur til ígrundunar um spurningar á borð við:
- Hvert er gildi móðurmálskennslu í þessum breytilega heimi?
- Hvernig getur kennsla í móðurmáli stutt við — og notið stuðnings af — kennslu annars máls?
- Hver eru markmið með móðurmálskennslu við núverandi aðstæður?
- Hvaða sjónarhorn, kenningar og nálganir eru líklegastar til að hjálpa til við að ná þessum markmiðum?
- Hvernig upplifa nemendur móðurmál sitt og hlutverk þess meðal annarra tungumála í samfélaginu?
Ráðstefnan er á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Að þessu sinni er ráðstefnan haldin í samstarfi við NNFF (Norrænt net um rannsóknir á kennslufræði fyrsta máls) og fer einkum fram á ensku og að hluta til á skandinavískum málum. Á laugardag verða haldnar málstofur fyrir þá sem vilja flytja erindi sín á íslensku.
Við bjóðum fræðafólk, doktorsnema, kennara af öllum skólastigum og annað fagfólk hjartanlega velkomið til að ræða nýjustu þekkingu í kennslu fyrsta og annars máls. Ráðstefnan er vettvangur fræðilegrar umræðu, miðlunar hugmynda og samstarfs þvert á tungumála-, menningar- og landfræðileg landamæri.
Málstofukall
opið fyrir innsendingu ágripa
Nú er opið fyrir innsendingu ágripa á ráðstefnuna. Við óskum eftir erindum á málstofur frá kennurum á öllum skólastigum, fræðafólki og öðrum áhugasömum um efni ráðstefnunnar.
Einkum er leitað eftir:
- Kynningu á árangursríkum leiðum, aðferðum og verkfærum
- Kynningu á vel heppnuðum þróunarverkefnum
- Kynningu á nýlegum íslenskum og erlendum rannsóknum
- Efni sem bíður upp á virka þátttöku gesta
Skilafrestur er 30. október 2026.