Námstefna í Byrjendalæsi
föstudaginn 11. september
Föstudaginn 11. september verður haldin Námstefna í Byrjendalæsi í HA. Á námstefnunni koma saman kennarar sem kenna börnum á yngsta stigi grunnskóla með kennsluaðferðinni Byrjendalæsi og áhugafólk um læsi á yngsta stigi grunnskólans.
Í Byrjendalæsi er lögð áhersla á að börn kynnist áhugaverðum bókmenntum og fræðitextum. Barnabókmenntir og aðrir gæðatextar eru nýttir í lestrarkennslunni til að kenna tengsl stafs og hljóðs, efla lesskilning og kveikja áhuga barna á lestri og bókmenntum.
Aðalfyrirlesarar námstefnunnar verða:
- Dr. Dominic Wyse, prófessor í menntun yngri barna við The University College í London
- Pernille Ripp, kennari, rithöfundur og fyrirlesari
Takið daginn frá!