Nýtt skólaár er hafið og starfið hjá okkur á miðstöðinni rúllar af stað með krafti. Við leggjumst í ferðalög um landið, heimsækjum skóla, höldum námskeið og tökum þátt í fjölbreyttu þróunarstarfi með öflugu skólafólki.
Í haust höfum við meðal annars heimsótt Blönduós, Dalvík, Egilsstaði, Hvalfjarðarsveit, Hörgársveit, Mývatnssveit, Norðurþing, Reyðarfjörð, Reykjanesbæ, Reykjavík, Selfoss, Þingeyjarsveit. Samhliða því sem við vinnum við með skólum í okkar heimabyggð Akureyri.
Hvarvetna höfum við fengið hlýjar móttökur og fundið fyrir fagmennsku, áhuga og metnaði í skólasamfélögum landsins. Það er bæði lærdómsríkt og gefandi að fá að fylgja verkefnum eftir, eiga samtal við starfsfólk og taka þátt í þróun skólastarfs víða um land.
Nú er undirbúningur í fullum gangi fyrir tvo stóra viðburði í september. Föstudaginn 11. september verður Námstefna í Byrjendalæsi í Háskólanum á Akureyri og í kjölfarið ráðstefnan Læsi til náms og yndis á laugardeginum 12. septemper. Á báðum viðburðum verður læsi í brennidelpi og boðið upp á fjölbreytta dagskrá, fyrirlestra og samtal um læsi, nám og kennslu.
Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur dagskrána og taka þátt, við lofum góðu veðri og hlökkum til að taka á móti ykkur. Slóðir á síður viðburðanna má finna í athugasemdum hér fyrir neðan.