Opið fyrir umsóknir hjá MSHA!
20.04.2026
Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri styður skóla í markvissri þróunarvinnu. Við vinnum með ykkur að umbótum sem skila sér í daglegu starfi.
Við bjóðum heildstæða þjónustu sem byggir á rannsóknum og reynslu úr íslensku skólastarfi. Þjónustan er sniðin að þörfum hvers skóla, hvort sem um er að ræða styttri verkefni eða lengra samstarf. Við leggjum áherslu á lausnir sem skila árangri.
Skólaþróunarverkefnin okkar fela í sér:
- Greiningu á stöðu og þörfum
- Skýr markmið og aðgerðaáætlun
- Fræðslu sem nýtist í skólastarfi
- Ráðgjöf og handleiðslu í innleiðingu
- Eftirfylgni og mat á árangri
Við styðjum við þróun á lykilsviðum skólastarfs:
- Læsi á öllum skólastigum
- Kennslu nemenda með íslensku sem annað tungumál
- Leiðsagnarnám
- Gæði kennslu
- Samskipti og félagsfærni
- Eflingu teyma og námssamfélaga
- Skólastjórnun og faglegt forystuhlutverk
Frekari upplýsingar: Starfsþróunarverkefni MSHA.
Skráðu ósk um verkefni með því að smella hér og við höfum samband.