Rannveig Oddsdóttir gestur í morgunútvarpi Rásar 2

Rannveig Oddsdóttir ræddi læsismál í morgunútvarpi rásar 2. Rannveig segir byrjendalæsi vera kennsluaðferð sem gangi út á að ná utan um alla þætti í lestrarkennslu. Til að verða vel læs þurfi að kenna fleiri þætti en stafi og hljóð, svo sem ritun og málskilning. Um þriðjungur skóla hér á landi er með byrjendalæsisstefnu og Inga hefur sagt að stefnan sé orsök lélegs lesskilnings meðal drengja.

Rannveig segir að miklar samfélagsbreytingar og tæknibreytingar hafi áhrif á lestrargetu barna. Miklar breytingar hafi orðið á því hvernig við notum tungumál og lestur í okkar daglega lífi. „Það hafa í raun og veru orðið miklu meiri breytingar utan skólans heldur en innan hans. Það er í raun og veru verið að kenna lestur á svipaðan hátt og hefur alltaf verið gert en það er svo margt annað sem hefur breyst.“

Smelltu hér til að hlusta á viðtalið.