Samræðufélagar á Akureyri og í Reykjavík haust 2026

Samræðurfélagar - Talking Partners

Reykjavík @primary (fyrir 5-12 ára nemendur) þann 24. - 25. ágúst (staðsetning auglýst síðar)

Reykjavík @secondary (fyrir 12-18 ára nemendur) þann 26.-27. ágúst (staðsetning auglýst síðar)

Akureyri @primary (fyrir 5-12 ára nemendur) þann 1.-2. september í Háskólanum á Akureyri

Akureyri @secondary (fyrir 12-18 ára nemendur) þann 3.-4. september í Háskólanum á Akureyri

Skráning hér

Verð 65.000

Innifalið: Tveggja daga námskeið auk eftirfylgni (tveir Teams fundir og ein skólaheimsókn til þeirra sem fara af stað með formlega íhlutun). 

Aðferðin Samræðufélagar gerir nemendum kleift að þroska samskipti sín og hæfileika í tjáningu og hlustun. Hún byggir á þekktum leiðum, meðal annars á kenningum Vygotsky´s um svæði hins mögulega þroska. Árangurinn af aðferðinni hefur verið góður, hún gefur nemendum tækifæri til að auka grunnfærni í samskiptum. Samræðufélagar var upphaflega þróað í Bretlandi fyrir nemendur sem voru að læra ensku sem annað mál. Hins vegar hentar það líka öðrum nemendum sem þurfa að þjálfa samræður. Verkefnið var þýtt af Rannveigu Sigurðardóttur og Rúnari Sigþórssyni.

Samræðufélagaaðferðin hefur verið rannsökuð bæði í Bretlandi en einnig nú á Íslandi. Breskar rannsóknir hafa gefið mjög jákvæðar niðurstöður, nemendum sem hafa farið í gegnum 10 vikna námskeiðið hefur farið mikið fram. Á Íslandi er ein rannsókn í gangi um þessar mundir TALÍS – að tala og læra íslensku í skólum þar sem árangur Samræðufélaga á nemendur er skoðaður. Fyrstu niðurstöður sýna framfarir.

Nánar um Samræðufélaga á heimasíðu MSHA undir "Starfsþróun".