Samræðusmiðja um barnabækur

  

Samræðusmiðja um barnabækur 4. apríl kl. 14.00–16.00

Við minnum á samræðusmiðju um barnabækur sem haldin verður næsta mánadag. Smiðjan er opin öllum og þátttakendum að kostnaðarlausu. Litið verður í nokkrar nýútgefnar barnabækur og rætt um mögulega notkun þeirra í skólastarfi. Hugmyndir að vinnu með mál og læsi í víðum skilningi auk samþættingar og námsaðlögunar í fyrirrúmi. Kennarar eru hvattir til að taka með sér nýjar barnabækur sem þeir hafa unnið með og deila með öðrum reynslu sinni.
Umsjón með smiðjunni hafa Hólmfríður og Þóra Rósa frá MSHA.

Markmiðið með smiðjunni er að skapa vettvang fyrir samræður og deila þekkingu og reynslu.
Tímasetning: Mánudagur 4. apríl kl. 14–16 í L203 í HA

 Næsta samræðusmiðja

25. apríl

L-203

Leiðsagnarmat – framhaldsskóli

Rætt um fjölbreyttar leiðir í leiðsagnarmati með áherslu á unglingastig og framhaldsskóla.

Hlökkum til að sjá ykkur!
Miðstöð skólaþróunar HA