Samræðusmiðja um Strákaspjall

 

Samræðusmiðja um Strákaspjall

Mánudagur 29. febrúar kl. 14–16 í stofu L–203 í HA

Við minnum á samræðusmiðju um Strákaspjall sem haldin verður næsta mánadag. Smiðjan er opin öllum og þátttakendum að kostnaðarlausu.

Sagt verður frá tilurð verkefnisins, markmiðum og þróun, framkvæmd og reynslu. Smiðjan verður í umsjón grunnskólakennara sem hafa reynslu af verkefninu og MSHA.

Markmiðið með smiðjunni er að skapa vettvang fyrir samræður og deila þekkingu og reynslu.

Markmiðið með smiðjunni er að skapa vettvang fyrir samræður og deila þekkingu og reynslu.

Næstu samræðusmiðjur

7.mars

L-203

Læsi á miðstigi

Rætt verður um fjölbreytt vinnubrögð í læsiskennslu á miðstigi og nýtt námsefni skoðað.

 

4.apríl

L-203

Barnabækur

Litið verður í nokkrar nýútgefnar barnabækur og rætt um mögulega notkun þeirra í skólastarfi. Hugmyndir að vinnu með mál og læsi í víðum skilningi auk samþættingar og námsaðlögunar í fyrirrúmi.

 

25. apríl

L-203

Leiðsagnarmat – framhaldsskóli

Rætt um fjölbreyttar leiðir í leiðsagnarmati með áherslu á unglingastig og framhaldsskólann.

 

Hlökkum til að sjá ykkur!

Miðstöð skólaþróunar HA