Samskipti stúlkna - leið til lausna, nú á vefnum!

Námskeiðið Samskipti stúlkna - leið til lausna er hagnýtt og árangursríkt verkefni sem hægt er að vinna með stúlkum í 5.-10. bekk til að þess að stuðla að jákvæðum samskiptum í stúlknahópum. Námskeiðið er alla sem starfa með stúlkum á þessum aldri. Námskeiðið byggir á hugmyndum bandarísku sérfræðinganna Julaine Field, Jered Kolbert, Laura Crothers og Tammy Hughes. Þau hafa sett saman áætlun fyrir skóla um hvernig vinna má með stúlkur sem eiga í samskiptavanda. Áætlunin byggir á ákveðnu skipulagi sem hægt er að nýta með stúlknahópum.


Lýsing:
Samskipti stúlkna - leið til lausna er samræðu- og samskiptaverkefni ætlað stelpum á mið- unglingastigi grunnskóla (5.-10. bekk). Það er bæði hugsað sem fyrirbyggjandi og einnig til þess að vinna úr samskiptavanda sem er til staðar. Verkefnið samanstendur af 10 spjallfundum og er hvert spjall 40 mínútna langt.

Markmið:
Þátttakendur:
Öðlast þekkingu á fræðilegum grunni efnisins.
Leikni til þess að halda leiða samræðu- og samskiptafundi með stúlknahópum.

Félagsleg færni stúlknanna er efld með samskiptavinnu og þær fá tækifæri til að ræða saman um þau félaglegu skilaboð sem ætluð eru ungum konum/stelpum í dag, um mikilvægi félagstengsla, sjálfvirðingar og félagslegrar samkenndar. Stúlkurnar fá þjálfun í að hugsa á gagnrýninn hátt um samskipti sín, hvernig þær tengjast hver öðrum og þeim er gefið tækifæri til að tala um reynslu sína um leið og þær læra að takast á við árekstra og samkeppni við jafningjana.

 

Fyrsti hluti
23.-30. nóvember 2020
Fyrirlestrar og verkefni á vef (4 klst.)
Ráðgjafarfundur í rauntíma með kennara námskeiðsins (2 klst.)

Annar hluti 
Ráðgjafarfundur fyrir hvern og einn þátttakanda í rauntíma með kennara námskeiðsins (30 mín.), haldinn eftir að þátttakendur hafa haldið 3-4 fundi með stúlkum. 

Þriðji hluti 
23. mars 2021
Fyrirlestrar og verkefni á vef (1-2 klst.)
Ráðgjafarfundur í rauntíma með kennara námskeiðsins (1-2 klst.)

 

Námskeiðið er fyrir alla sem starfa með stúlkum í 5.-10. bekk og hefur það verið vinsælt hjá kennurum, náms- og starfsráðgjöfum, tómstunda- og félagsmálafræðingum, félagsráðgjöfum og starfsfólki í félagsmiðstöðvum. 

 

Nóvember
Fyrirlestrar á vef + ráðgjafarfundur með kennara námskeiðsins

Desember- mars
Ráðgjafarfundur fyrir hvern og einn þátttakanda

Mars
Fyrirlestrar á vef + ráðgjafarfundur með kennara námskeiðsins

 

Nánari upplýsingar veitir:  
Sigríður Ingadóttir, sigriduri@unak.is, 460 8591

KOSTNAÐUR

43.900 kr.

 

Umsagnir „þátttakenda“:
„Gott að fá verkfæri í hendurnar“
„Vekur okkur til umhugsunar um samskiptin. Frábær verkfæri“
„Praktískt“
„Fínt námskeið“
„Hagnýtt“