Samskipti stúlkna - námskeið á Akureyri

 

Samskipti stúlkna er námskeið fyrir kennara og starfandi ráðgjafa í skólum. Námskeiðið byggir á hugmyndum bandarískra fræðimanna sem sett hafa saman áætlun fyrir skóla um hvernig vinna má með stúlkum sem eiga í samskiptavanda. Efnið hefur verið rannsakað og reynt á Íslandi og skilaði góðum árangri.

Námskeiðið hentar fyrir kennara á mið- og unglingastigi. Það verður haldið í Háskólanum á Akureyri, mánudagana 23. og 30. september. ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið hefst klukkan 13:00 og því lýkur klukkan 16:00. Þátttakendur vinna með verkfæri námskeiðsins hver í sínum skóla og enda á ½ dags námskeiði í mars/apríl 2020 þegar þeirri vinnu er lokið. 

Námskeiðið kostar 49.000 kr. (þrjú skipti). 
Kennarar í grunnskólum Akureyrarbæjar fá frítt á námskeiðið. 

Hægt er að skrá sig með því að smella hér.