Rannveig segir það sorglegt að upplifa að talað sé niður til kennara. Hún segir að Inga fái kennara ekki á sitt band með sinni orðræðu. „Þá er hún í raun og veru að segja að 1/3 skóla og kennara á yngsta stigi á Íslandi séu bara á villigötum og séu að nota hérna einhverja stórhættulega aðferð. Það er ekki til þess að fá fólk með sér eða gefa góð skilaboð út á vettvanginn.“ Inga hefur talað mikið um að horfa til Finnlands sem fyrirmynd en Rannveig segist ekki átta sig á hvað hún sér fyrir sér þar. Rannveig segir að finnska skólakerfið einkennist ekki af miðstýringu heldur sé kennurum og skólum treyst til að móta sína stefnu og sinna kennslu. Mikil virðing sé borin fyrir kennurum í Finnlandi og aðsókn mikil í kennaranám. Að mati Rannveigar hefur orðræða Ingu borið þess merki að hana skorti læsi á málaflokkinn sem hún hefur nú tekið við. „Þegar maður tekur við ráðherraembætti þá nýtir maður þetta læsi til að lesa sér til um málin,“ segir Rannveig Oddsdóttir.
- Skólaþjónusta
- Starfsþróun
- Ráðstefnur
- Liðnar ráðstefnur
- Vísindi í námi og leik
- Læsi í skapandi skólastarfi
- Námstefna um Byrjendalæsi 2018
- Sterkari saman - farsælt samstarf heimila og skóla
- Byrjendalæsi: Rannsókn á innleiðingu og aðferð
- Samræðuþing Hugleiks
- Jafnrétti í skólastarfi
- Læsi - skilningur og lestraránægja
- Námstefna um Byrjendalæsi - 2016
- Að greina sundur hina flóknu þræði - Vandamálavæðing eða starfsþróun í skólum?
- Snjallari saman
- Málþing um læsi 2015
- Hugsmíðar og hæfnimiðað nám
- Læsi til samskipta og náms
- Námstefna í Byrjendalæsi 2014
- Það verður hverjum að list sem hann leikur
- Skóli og nærsamfélag - að verða þorpið sem elur upp barnið
- Lestur og læsi - að skapa merkingu og skilja heiminn
- Liðnar ráðstefnur
- Útgefið efni
- Um okkur
- Verkbeiðni
- Leit