Sprotasjóður úthlutar styrkjum

Þrír leikskólar á Akureyri fengu styrki úr Sprotasjóði fyrir skólaárið 2016–2017. Þetta eru leikskólarnir, Iðavöllur fyrir verkefnið: Það er leikur að læra íslensku – Að koma til móts við nemendur af erlendum uppruna, Krógaból fyrir verkefnið: Nýsköpun og snjalltæki – Að koma til móts við nýja kynslóð, leikskólinn  og Pálmholt fyrir verkefnið: Stærðfræði skimun. Alls hlutu skólarnir þrír 7.3 milljónir í styrk samkvæmt upplýsingum af vef Sprotasjóðs. Miðstöð skólaþróunar HA er samstarfsaðili leikskólana í þessum spennandi verkefnum. Til hamingju með styrkina og gangi ykkur vel með verkefnin.

Alls bárust 129 umsóknir til sjóðsins og var heildarupphæð umsókna rúmar 300 millj. kr. Veittir voru styrkir til 38 verkefna að upphæð rúmlega 60 millj. kr.

Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.