Um 350 manns sóttu Námstefnu í Byrjendalæsi og ráðstefnuna Læsi til náms og yndis sem haldnar voru í Háskólanum á Akureyri dagana 11. og 12. september. Þar komu saman kennarar, fræðafólk og aðrir sem starfa að menntun barna til að ræða læsi, lestrarkennslu, lestrargleði og þróun skólastarfs.
Tveir þekktir erlendir sérfræðingar á sviði læsis og menntunar, Dominic Wyse og Pernille Ripp, voru meðal aðalfyrirlesara daganna. Þau nálguðust læsiskennslu frá ólíkum sjónarhornum og tengdu saman rannsóknir, kennslufræði og reynslu úr skólastofunni.
Dominic Wyse, prófessor við University College London, fjallaði um rannsóknir sínar á samspili lestrar og ritunar og kenninguna The Double Helix of Reading and Writing.
Pernille Ripp, grunnskólakennari, rithöfundur og alþjóðlegur fyrirlesari, beindi sjónum að lestrargleði, sjálfræði nemenda og því hvernig skapa megi námsumhverfi þar sem börn vilja lesa og upplifa sig sem virka og sjálfstæða lesendur. Hún fjallaði meðal annars um hvernig hægt sé að efla færni barna án þess að gleðin og áhuginn á lestri glatist.
Mikil áhersla var einnig lögð á íslenskt þróunarstarf og reynslu úr skólastarfi. Kennarar úr leik- og grunnskólum Húsavíkur kynntu þróunarverkefnið Lítil skref á leið til læsis, sem hlaut Íslensku menntaverðlaunin 2026. Verkefnið hefur vakið athygli fyrir markvissa vinnu með læsi og samfellu í námi barna milli skólastiga.
Rithöfundarnir Gunnar Theodór Eggertsson og Yrsa Þöll Gylfadóttir tóku einnig þátt í dagskránni og fjölluðu um bækur, starf rithöfundarins, lestur og tengsl barna við bókmenntir.
Báða dagana var boðið upp á fjölbreyttar málstofur þar sem fræðafólk og kennarar kynntu rannsóknir, þróunarverkefni, kennsluaðferðir og námsefni. Þátttakendum gafst þannig tækifæri til að kynnast bæði fræðilegri þekkingu og hagnýtum leiðum sem nýta má í skólastarfi.
Námstefna í Byrjendalæsi er haldin á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. Ráðstefnan Læsi til náms og yndis er samstarfsverkefni Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.
Viðburðirnir eru haldnir á tveggja ára fresti og verða næst haldnir haustið 2028. Við þökkum öllum sem lögðu leið sína í Háskólann á Akureyri um síðustu helgi fyrir komuna og vonum að dagskráin hafi veitt þátttakendum bæði hugmyndir og innblástur.