Viðurkenningar úr minningarsjóði Rósu Eggertsdóttur veittar í fyrsta sinn

Framúrskarandi starf í læsiskennslu heiðrað á Námstefnu um Byrjendalæsi

Námstefna um Byrjendalæsi er haldin annað hvert ár við Háskólann á Akureyri. Í ár var námstefnan tileinkuð minningu Rósu Eggertsdóttur, fræðikonu, menntafrumkvöðuls og höfundar Byrjendalæsis, sem lést í október 2024.

Rósa starfaði um árabil við Háskólann á Akureyri og Miðstöð skólaþróunar, þar sem meginviðfangsefni hennar voru læsi, skólaþróun og starfsþróun kennara. Í þróunarverkefninu Byrjendalæsi sameinaði hún þessi viðfangsefni með áherslu á fjölbreyttar þarfir barna, faglegt sjálfstæði kennara og skapandi námsumhverfi. Aðferðin hefur á undanförnum tveimur áratugum náð til mörg hundruð kennara og þúsunda nemenda víða um land.

Viðurkenningar voru veittar kennurum sem sýnt hafa fram á framúrskarandi árangur, nýbreytni eða fyrirmyndarstarf í læsiskennslu. Við mat á tilnefningum var meðal annars horft til fagþekkingar og kennsluaðferða, námsaðlögunar, áhrifa á nám og framfarir nemenda, faglegs samstarfs og framlags til skólasamfélagsins.

Með viðurkenningunum er arfleifð Rósu haldið á lofti með lifandi hætti. Um leið og framlag hennar til fræða og skólastarfs er heiðrað fá kennarar sem halda starfinu áfram verðskuldaða viðurkenningu og hvatningu.

Minningarsjóður Rósu Eggertsdóttur er í vörslu Zontaklúbbsins Þórunnar Hyrnu.


Viðurkenningar hlutu:

Hilda Rós Pálsdóttir og Eyrún Tryggvadóttir, umsjónarkennarar á yngsta stigi í Borgarhólsskóla

Þórdís Þórisdóttir, kennari og leiðtogi í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit

Lilja Þorkelsdóttir, kennari og leiðtogi í Síðuskóla

Drífa Magnúsdóttir, kennari og leiðtogi í Egilsstaðaskóla

Svala Einarsdóttir, kennari og leiðtogi í Valsárskóla


Á myndinni má sjá framúrskarandi Byrjendalæsiskennara með viðurkenningar sínar.