Allt starfsfólk - með áherslu og skýra sýn og sameiginlega ábyrgð
Kennsla í íslensku sem öðru tungumáli (ÍSAT) er tiltölulega nýtt hugtak í íslensku skólakerfi. Það kom fyrst fram í Aðalnámskrá grunnskóla árið 2007 og var skilgreint formlega sem námsgrein í Aðalnámskránni árið 2021. Samhliða hraðri fjölgun nemenda með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn hefur þessi þróun haft veruleg áhrif á starfs- og kennsluhætti í leik-, grunn- og framhaldsskólum landsins.
Markhópur:
Allt starfsfólk í leik-, grunn- og framhaldsskólum
Umfang:
Klukkustundar erindi
Lýsing:
Farið er yfir ábyrgð alls starfsfólks á vellíðan fjöltyngdra nemenda. Að öll getum við lagt okkar að mörkum til að þess að þau upplifi sig hluta af skólasamfélaginu. Hvað getur starfsfólk gert til að skapa hvetjandi námssamfélag fyrir nemendur með markvissum hætti á fyrstu misserum íslenskunámsins?
Markmið:
- að öðlast skilning á líðan og þörfum fjöltyngdra nemenda og það hversu fjölbreyttur hópurinn er
- að fara út með aukið sjálfstraust í að mörg eru að gera rétt við þurfum bara að gera meira
- að fá hagnýtar hugmyndir og verkfæri sem hægt er að nýta
- að átta sig á að litlar breytingar geta haft mikil áhrif