Félagaspjall
Á námskeiðinu Félagaspjall kynnast þátttakendur samræðu- og samskiptaverkefni fyrir nemendur í 6.–8. bekk og læra að nýta það í eigin starfi. Verkefnið byggist á sjö þemum og því fylgja 18 handrit að samræðufundum. Markmiðið er að gefa nemendum tækifæri til að vinna með samræðu- og samskiptafærni í fjölbreyttum viðfangsefnum.
Viðfangsefni Félagaspjalls byggjast á efni frá Jubilee Centre for Character and Virtues við University of Birmingham í Bretlandi.
Markhópur
Grunnskólakennarar á miðstigi og unglingastigi, auk náms- og starfsráðgjafa.
Markmið námskeiðsins
Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að:
- þekkja fræðilegan grunn verkefnisins,
- geta nýtt verkfæri verkefnisins til að vinna með þætti lykilhæfni í skólastarfi,
- geta undirbúið og leitt samræðufundi með nemendahópum.
Um verkefnið með nemendum
Félagaspjall byggist á sjö þemum þar sem unnið er með fjölbreytt viðfangsefni. Verkefninu fylgja 18 handrit að samræðufundum sem dreifast á þemun sjö og tekur hver samræðufundur mið af einu þema. Hver fundur tekur 40–60 mínútur.
Þátttakendur velja 10–12 handrit af þeim 18 sem fylgja verkefninu til að vinna með sínum nemendahópi.
Í Félagaspjalli fá nemendur tækifæri til að:
- vinna með samskipti og félagslega færni,
- ræða félagsleg skilaboð sem beinast að ungu fólki,
- ræða mikilvægi félagstengsla, sjálfsvirðingar og félagslegrar samkenndar,
- hugsa á gagnrýninn hátt um eigin samskipti og tengsl við aðra,
- ræða eigin reynslu og skoðanir,
- fjalla um samskipta- og álitamál.
Uppbygging samræðufundanna
Hver samræðufundur felur í sér:
- hópeflisleik,
- vinnu og samræðu um viðfangsefnið,
- verkefnavinnu.
Grunnur að vinnunni er lagður strax í upphafi þegar hópurinn setur sér samræðuviðmið sem styðja samskipti og samræður á fundunum.
Félagaspjall má nýta bæði með kynjaskiptum og blönduðum nemendahópum.
Verkefnið getur tekið við af Krakkaspjalli og nýst áður en farið er í Unglingaspjall. Félagaspjall er þó sjálfstætt verkefni og ekki er nauðsynlegt að nemendur hafi áður tekið þátt í Krakkaspjalli eða taki síðar þátt í Unglingaspjalli.
Tenging við Aðalnámskrá
Félagaspjall tengist lykilhæfni Aðalnámskrár grunnskóla og hæfniviðmiðum samfélagsgreina sem snúa að lífsleikni og siðfræði.
Uppbygging og framkvæmd
Námskeiðið er í boði á staðnum og á vef. Í báðum námskeiðsformum kynna þátttakendur sér efnið, velja handrit úr Félagaspjalli til að prófa með nemendahópi í eigin starfi og fá ráðgjöf í ferlinu.
Námskeið á staðnum
Fyrri hluti námskeiðsins
Þátttakendur og námskeiðshaldari hittast á staðnum. Farið er yfir hugmyndafræði, fræðilegan grunn og efni verkefnisins.
Fyrri námskeiðsdagurinn er kl. 10.00–16.00.
Milli námskeiðshluta
Þátttakendur velja 10–12 handrit af þeim 18 sem fylgja Félagaspjalli og vinna með samræðufundina í eigin skóla með nemendahópi.
Þátttakendur hafa aðgang að Padlet-svæði námskeiðsins þar sem hægt er að deila hugmyndum og reynslu af vinnunni.
Einstaklingsráðgjöf
Eftir 3–4 samræðufundi með nemendahópi fá þátttakendur einstaklingsráðgjöf frá námskeiðshaldara á Zoom.
Seinni hluti námskeiðsins
Í seinni hlutanum er unnið úr reynslu þátttakenda og námskeiðinu lokið.
Seinni hluti námskeiðsins fer fram um 3–4 mánuðum eftir fyrri námskeiðsdag og er þrjár klukkustundir. Dag- og tímasetning er ákveðin í samráði við þátttakendur á fyrri námskeiðsdegi.
Námskeið á vef
Fyrri hluti námskeiðsins
Þátttakendur fá aðgang að námsefni í Canvas og hafa eina viku til að horfa á fyrirlestra og vinna verkefni á þeim tíma sem þeim hentar.
Að vikunni lokinni hittast þátttakendur og námskeiðshaldari á Zoom-fundi í rauntíma kl. 14.00–16.00. Þar er farið yfir samræðufundina og hvernig þátttakendur nýta þá með nemendahópum.
Milli námskeiðshluta
Þátttakendur velja 10–12 handrit af þeim 18 sem fylgja Félagaspjalli og vinna með samsvarandi samræðufundi með nemendahópi í eigin starfi.
Einstaklingsráðgjöf
Eftir 3–4 samræðufundi með nemendahópi fá þátttakendur einstaklingsráðgjöf frá námskeiðshaldara á Zoom.
Seinni hluti námskeiðsins
Seinni hluti námskeiðsins er byggður upp með sambærilegum hætti og sá fyrri. Þátttakendur fá aðgang að fyrirlestrum í Canvas og hafa eina viku til að fara yfir efnið.
Að vikunni lokinni hittast þátttakendur og námskeiðshaldari á Zoom-fundi í rauntíma kl. 14.00–16.00.
Nánari upplýsingar
Ragnhildur Íris Einarsdóttir
ragnhildur@unak.is