ÍSAT - kennurum og þeim sem kenna íslensku sem annað tungumál – með áherslu á hagnýtar leiðir í kennslu
Kennsla í íslensku sem öðru tungumáli (ÍSAT) er tiltölulega nýtt hugtak í íslensku skólakerfi. Það kom fyrst fram í Aðalnámskrá grunnskóla árið 2007 og var skilgreint formlega sem námsgrein í Aðalnámskránni árið 2021. Samhliða hraðri fjölgun nemenda með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn hefur þessi þróun haft veruleg áhrif á starfs- og kennsluhætti í leik-, grunn- og framhaldsskólum landsins.
Markhópur:
Allir þeir sem kenna íslensku sem annað tungumál í leik, - grunn- og framhaldsskólum
Umfang:
2-4 klukkustundir eftir umfangi
Lýsing:
Kynntar verða aðferðir og kennsluefni sem styðja við gæðakennslu í öllum hæfniþáttunum: hlustun, lestri, ritun og töluðu máli eins og í annarri tungumálakennslu fremur en að líta á ÍSAT sem stuðnings- og aðlögunarúrræði. Einnig verður fjallað um nytsamleg forrit og verkfæri sem nýtast í ÍSAT kennslu með markvissri notkun upplýsingatækni.
Markmið er:
- að efla færni kennara í gæðakennslu í ÍSAT
- að öðlast skilning á ÍSAT sem tungumálakennslu
- að kynna nytsamleg stafræn forrit og verkfæri fyrir ÍSAT kennslu
- að auka faglegt öryggi kennara í skipulagningu og framkvæmd ÍSAT-kennslu