ÍSAT - kennurum og þeim sem kenna íslensku sem annað tungumál - með áherslu á námsmat

ÍSAT - kennurum og þeim sem kenna íslensku sem annað tungumál - með áherslu á námsmat

 

Markhópur:

Allir þeir sem kenna íslensku sem annað tungumál í leik, - grunn- og framhaldsskólum


Umfang:

2-4 klukkustundir eftir umfangi


Lýsing:

Lögð er áhersla á markvisst mat á fjöltyngdum nemendum út frá hæfnistigum Aðalnámskrár. Kynnt verður heildstætt matsverkefni sem þróað hefur verið fyrir öll þrjú aldurstig grunnskóla og öll hæfnistig og kennurum leiðbeint í notkun þess í daglegu skólastarfi. Markmiðið er að tryggja að fjöltyngdir nemendur séu rétt metnir, rétt raðaðir á hæfnistigin skv. Aðalnámskrá og fái kennslu við hæfi í samræmi við raunverulega færni þeirra. Námskeiðið styrkir faglegt öryggi kennara og styður við réttláta og faglega námsframvindu allra nemenda sem eru að feta sín fyrstu skref í íslenskunámi sínu.


Markmið er:

  • að efla faglegt öryggi kennara í mati á fjöltyngdum nemendum
  • að kynna og þjálfa notkun heildstæðs matsverkefnis
  • að tryggja rétta röðun nemenda á hæfnistig og kennslu við hæfi
  • að styðja við jafnræði og faglega námsframvindu fjöltyngdra nemenda