📚 Til hamingju með alþjóðlegan dag læsis!
Þrátt fyrir PISA-tíðindi dagsins höldum við áfram að vinna að læsi af krafti og viljum nota tækifærið til að benda á nýtt efni frá MSHA sem getur nýst í læsisvinnu með nemendum.
🧠 Siðferðisglímur, námsefni ætlað unglingum:
https://www.msha.is/static/files/sidferdisglimur.pdf
💬 Samræðustundir í Orðaleik, efni fyrir yngstu nemendurna:
https://ordaleikur.msha.is/is/namsgogn/rafbaekur
Við minnum líka á tvo læsisviðburði í Háskólanum á Akureyri um helgina:
📖 Námstefna í Byrjendalæsi
https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/namstefna-i-byrjendalaesi
✨ Ráðstefnan Læsi til náms og yndis
https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/laesi-til-nams-og-yndis
Enn er hægt að tryggja sér pláss. Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga með ykkur góða daga þar sem við eflum saman þekkingu og færni í læsi.
📚 Áfram læsi og áfram lestur!
Bestu kveðjur
Læsisteymi MSHA