ÍSAT - Kennsla í íslensku sem öðru tungumáli
Kennsla í íslensku sem öðru tungumáli (ÍSAT) er tiltölulega nýtt hugtak í íslensku skólakerfi. Það kom fyrst fram í Aðalnámskrá grunnskóla árið 2007 og var skilgreint formlega sem námsgrein í Aðalnámskránni árið 2021. Samhliða hraðri fjölgun nemenda með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn hefur þessi þróun haft veruleg áhrif á starfs- og kennsluhætti í leik-, grunn- og framhaldsskólum landsins.
Boðið er upp á markvissa ráðgjöf sem miðar að því að styrkja skólasamfélög í þessari vinnu. Ráðgjöfin er þrenns konar:
Ætluð öllu starfsfólki skólanna með áherslu á skýra sýn og sameiginlega ábyrgð
Ætluð ÍSAT - kennurum og þeim sem kenna íslensku sem annað tungumál með áherslu á hagnýtar leiðir í kennslu.
Ætlað ÍSAT kennurum og þeim sem kenna íslensku sem annað tungumál með áherslu á námsmat.