Fréttir

Ekki nóg að safna gögnum!

Nýr þáttur af Kerfinu er kominn í loftið á rás 1. Gestir í þessum fyrsta þætti eru Gunnar Gíslason og Rúnar Sigþórsson. Umsjón er í höndum Guðrúnar Hálfdánardóttur. Áhugavert samtal fyrir alla sem hafa áhuga á læsi og menntun barna.

Læsi til náms og yndis - læsisráðstefna 12. september 2026

Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA) og Miðstöð menntunar og skólaþróunar (MMS) standa fyrir læsisráðstefnunni Læsi til náms og yndis sem haldin verður við Háskólann á Akureyri laugardaginn 12. september 2026.

Námstefna í Byrjendalæsi í HA - 11. september 2026

Föstudaginn 11. september verður haldin Námstefna í Byrjendalæsi í HA. Á námstefnunni koma saman kennarar sem kenna börnum á yngsta stigi grunnskóla með kennsluaðferðinni Byrjendalæsi og áhugafólk um læsi á yngsta stigi grunnskólans. Í Byrjendalæsi er lögð áhersla á að börn kynnist áhugaverðum bókmenntum og fræðitextum. Barnabókmenntir og aðrir gæðatextar eru nýttir í lestrarkennslunni til að kenna tengsl stafs og hljóðs, efla lesskilning og kveikja áhuga barna á lestri og bókmenntum.