Fréttir

Viðurkenningar úr minningarsjóði Rósu Eggertsdóttur veittar í fyrsta sinn

Viðurkenningar úr minningarsjóði Rósu Eggertsdóttur voru veittar í fyrsta sinn á Námstefnu um Byrjendalæsi, sem haldin var í Háskólanum á Akureyri föstudaginn 11. september. Með viðurkenningunum var framúrskarandi starf kennara og leiðtoga í þágu læsismenntunar heiðrað og athygli vakin á góðum starfsháttum sem styrkja læsi nemenda.

Málstofukall - Móðurmál og önnur mál: Mörk og flæði, möguleikar og áskoranir

Ráðstefnan er á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Að þessu sinni er ráðstefnan haldin í samstarfi við NNFF (Norrænt net um rannsóknir á kennslufræði fyrsta máls) og fer einkum fram á ensku og að hluta til á skandinavískum málum. Á laugardag verða haldnar málstofur fyrir þá sem vilja flytja erindi sín á íslensku. Við bjóðum fræðafólk, doktorsnema, kennara af öllum skólastigum og annað fagfólk hjartanlega velkomið til að ræða nýjustu þekkingu í kennslu fyrsta og annars máls. Ráðstefnan er vettvangur fræðilegrar umræðu, miðlunar hugmynda og samstarfs þvert á tungumála-, menningar- og landfræðileg landamæri.

Móðurmál og önnur mál: Mörk og flæði, möguleikar og áskoranir, ráðstefna 8.-10. apríl í HA

Vertu með á Vorráðstefnu Miðstöðvar skólaþróunar og Kennaradeildar HA í samstarfi við NNFF þar sem rætt verður um mörk, flæði og framtíð kennslu móðurmáls og annarra tungumála. Ráðstefnan er á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Að þessu sinni er ráðstefnan haldin í samstarfi við NNFF (Norrænt net um rannsóknir á kennslufræði fyrsta máls) og fer einkum fram á ensku og að hluta til á skandinavískum málum. Á laugardag verða haldnar málstofur fyrir þá sem vilja flytja erindi sín á íslensku. Við bjóðum fræðafólk, doktorsnema, kennara af öllum skólastigum og annað fagfólk hjartanlega velkomið til að ræða nýjustu þekkingu í kennslu fyrsta og annars máls. Ráðstefnan er vettvangur fræðilegrar umræðu, miðlunar hugmynda og samstarfs þvert á tungumála-, menningar- og landfræðileg landamæri.

Um 350 þátttakendur sóttu læsisviðburði í Háskólanum á Akureyri

Um 350 manns sóttu Námstefnu í Byrjendalæsi og ráðstefnuna Læsi til náms og yndis sem haldnar voru í Háskólanum á Akureyri dagana 11. og 12. september. Þar komu saman kennarar, fræðafólk og aðrir sem starfa að menntun barna til að ræða læsi, lestrarkennslu, lestrargleði og þróun skólastarfs. Tveir þekktir erlendir sérfræðingar á sviði læsis og menntunar, Dominic Wyse og Pernille Ripp, voru meðal aðalfyrirlesara daganna. Þau nálguðust læsiskennslu frá ólíkum sjónarhornum og tengdu saman rannsóknir, kennslufræði og reynslu úr skólastofunni.

📚 Til hamingju með alþjóðlegan dag læsis!

Þrátt fyrir PISA-tíðindi dagsins höldum við áfram að vinna að læsi af krafti og viljum nota tækifærið til að benda á nýtt efni frá MSHA sem getur nýst í læsisvinnu með nemendum.