29.01.2026
Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri hefur í um 20 ár boðið skólum stuðning við eflingu starfshátta við kennslu læsis, meðal annars í starfsþróunarverkefninu Byrjendalæsi sem þróað var fyrir læsiskennslu í 1. og 2. bekk grunnskóla og hefur náð góðri fótfestu í mörgum skólum. Aðferðin myndar umgjörð um læsiskennslu sem tryggir að unnið sé með alla helstu undirþætti læsis, það er talað mál, hlustun, lestur og ritun samkvæmt gagnreyndum aðferðum. Í upphafi lestrarnáms er unnið markvisst með tengsl stafa og hljóða og hljóðaaðferð nýtt bæði á samtengjandi og sundurgreinandi hátt.
29.01.2026
Mánudaginn 12. janúar 2026 birtist í Morgunblaðinu „fréttaskýring“ þar sem fjallað er um kennsluaðferðina Byrjendalæsi, undir heitinu „Vikið frá vísindum læsisfræðinnar“. Í fréttaskýringunni lætur höfundur hennar vaða á súðum um ýmislegt sem ekki stenst nánari skoðun enda er hlaðvarp bandarískrar blaðakonu eina heimildin sem vitnað er til. Hvergi er vitnað í fræðafólk eða rannsakendur á sviði læsismenntunar. Hér á eftir verða tilgreind fimm atriði í fréttaskýringunni sem ýmist eru hálfsannleikur eða hreinar rangfærslur og reynt að halda fram því sem sannara reynist. Tilvitnanir í fréttaskýringuna er skáletraðar og orðréttar tilvitnanir í gæsalöppum.
29.01.2026
Í umræðu um kennsluaðferðina Byrjendalæsi kemur hvað eftir annað fram sá misskilningur að börnum sé ekki kennd lestrartæknin, þ.e. að þekkja stafi og hljóð þeirra og æfa fimi í lestri, með nægilega markvissum hætti. Umræða er oft byggð á sögusögnum og hugarburði um aðferðina frekar en fyrirliggjandi gögnum sem leiðir til þess að umræðan lendir á villigötum.
En hvernig er þetta í raun? Hvernig er stafa- og hljóðakennsla útfærð í Byrjendalæsi? Er mikill munur á áherslum í læsiskennslu hvað þetta varðar í Byrjendalæsisskólum og öðrum skólum? Og eru vísbendingar um það að lestrarfærni barna í Byrjendalæsisskólum þróist hægar en hjá íslenskum börnum almennt?