Fréttir

Læsi til náms og yndis - læsisráðstefna 12. september 2026

Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA) og Miðstöð menntunar og skólaþróunar (MMS) standa fyrir læsisráðstefnunni Læsi til náms og yndis sem haldin verður við Háskólann á Akureyri laugardaginn 12. september 2026.

Námstefna í Byrjendalæsi í HA - 11. september 2026

Föstudaginn 11. september verður haldin Námstefna í Byrjendalæsi í HA. Á námstefnunni koma saman kennarar sem kenna börnum á yngsta stigi grunnskóla með kennsluaðferðinni Byrjendalæsi og áhugafólk um læsi á yngsta stigi grunnskólans. Í Byrjendalæsi er lögð áhersla á að börn kynnist áhugaverðum bókmenntum og fræðitextum. Barnabókmenntir og aðrir gæðatextar eru nýttir í lestrarkennslunni til að kenna tengsl stafs og hljóðs, efla lesskilning og kveikja áhuga barna á lestri og bókmenntum.

Haustdagur grunnskólanna 2026, fjölbreytt dagskrá og góð þátttaka

Haustdagur grunnskólanna var haldinn 14. ágúst í Háskólanum á Akureyri. Þar komu saman um 350 kennarar, stjórnendur og starfsfólk úr 15 grunnskólum á Norðurlandi. Haustdagurinn hefur fest sig í sessi sem mikilvægur hluti af upphafi skólaársins. Markmið dagsins er að skapa vettvang fyrir starfsfólk skólanna til að dýpka faglega þekkingu og styrkja samstarf innan skólasamfélagsins á svæðinu.

Nýtt skólaár!

Nýtt skólaár er hafið og starfið hjá okkur á miðstöðinni rúllar af stað með krafti. Við leggjumst í ferðalög um landið, heimsækjum skóla, höldum námskeið og tökum þátt í fjölbreyttu þróunarstarfi með öflugu skólafólki.

Samræðufélagar á Akureyri og í Reykjavík haust 2026

Spennandi námskeið - fyrir ÍSAT kennara á öllum skólastigum! Í haust verða námskeið bæði í Reykjavík og á Akureyri.

Opið fyrir umsóknir hjá MSHA!

Miðstöð skólaþróunar býður upp á heildstæðan stuðning við starfsþróun á flestum sviðum skólastarfs. Vel rannsakað starfsþróunarlíkan. Fræðsla, ráðgjöf og stuðningur sem sniðinn er að þörfum skóla til lengri eða skemmri tíma. Aukin gæði í kennslu, læsi á öllum skólastigum, mannkostamenntun, leiðsagnarnám, skólastjórnun, kennsla ÍSAT nemenda, efling teyma, námssamfélaga o.fl.

MÁLSTOFUKALL - læsisráðstefnan Læsi til náms og yndis

Við óskum eftir erindum á málstofur frá kennurum á öllum skólastigum, fræðafólki og öðrum áhugasömum um efni ráðstefnunnar.

Ekki nóg að safna gögnum!

Nýr þáttur af Kerfinu er kominn í loftið á rás 1. Gestir í þessum fyrsta þætti eru Gunnar Gíslason og Rúnar Sigþórsson. Umsjón er í höndum Guðrúnar Hálfdánardóttur. Áhugavert samtal fyrir alla sem hafa áhuga á læsi og menntun barna.

Að verða læs fyrir lífið

Að undanförnu hefur verið hávær umræða um hvernig bregðast eigi við hnignandi lesskilningi meðal íslenskra grunnskólanema. Þessi umræða hefur beinst einhliða að lestrarkennslu á yngsta stigi grunnskóla en skilað að mestu leyti auðu varðandi kennslu á miðstigi og unglingastigi. Þetta er í alla staði óheppilegt og ólíklegt til árangurs. Í þessari grein eru færð rök fyrir nauðsyn þess að koma umræðunni upp úr þessum hjólförum og beina sjónum að því sem hægt er – og þarf – að gera á mið- og unglingastigi.

Dagur leikskólans - ný vefsíða um barnaheimspeki

Á vefsíðunni er barnaheimspeki kynnt sem leið til að efla gagnrýna hugsun og samræðuhæfni barna í leikskólastarfi. Áhersla er lögð á að skapa rými fyrir opnar spurningar, ígrundun og samræður þar sem börn læra að setja orð á hugsanir sínar og hlusta á sjónarmið annarra. Með þessu er stutt við virka þátttöku barna, málþroska og félagslega færni í leikskólastarfi.